Fréttir af aðalfundi
Aðalfundur Lögfræðingafélags Íslands var haldinn í lok maí síðastliðinn. Engar breytingar urðu á stjórn félagsins að þessu sinni og var Kristín Edwald hrl. var endurkjörin formaður og Eyvindur G. Gunnarsson dósent varaformaður. Stjórnina skipa: Páll ... meira
Þóra M. Hjaltested
Góður skóli að vinna að mótun löggjafar
Þóra M. Hjaltested réð sig til Arionbanka í sumar eftir að hafa starfað um árabil í stjórnarráðinu. Fréttabréfið ræddi við hana af því tilefni.
Hvernig er að söðla um úr ráðuneyti yfir í einkabanka?
"Það var ákvörðun sem ég hugsaði vel um. Mér hefur líkað vel í stjórnarráðinu, en þar eru unnin mikilvæg og áhugaverð verkefni. Mér fannst þó æskilegt að útvíkka reynslu mína og þar sem breytingar á ráðuneytaskipan stóð fyrir dyrum taldi ég þetta rétta tímapunktinn. Það er auðvitað heilmikil breyting að söðla um eftir 13 ár en ég get ekki ... meira
|
|
Umgöngumst valdheimildir af virðingu
Unnur Gunnarsdóttir er nýskipaður forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Fréttabréf LÍ spjallaði við hana af því tilefni.
Nú hefur þú fjölbreytta starfsreynslu, hvernig er að gegna forstjórastarfi í sjálfstæðri ríkisstofnun eins og FME miðað við t.d. starf í ráðuneyti?
"Í ráðuneyti er fyrst og fremst verið að móta leikreglurnar en hjá stofnun ertu að beita þeim. Í stofnun er meiri eiginleg sérfræðingavinna. Ég man eftir því úr ráðuneytinu að oft þurfti að leita til stofnana vegna sérþekkingarinnar sem þar er. Reyndar er Fjármálaeftirlitið sérstakt miðað við margar ... meira
Tímarit lögfræðinga í flokk úrvalstímarita
Vísindanefnd opinberra háskóla hefur nú fellt Tímarit lögfræðinga í flokk úrvalstímarita í matskerfi háskólanna. Tiltölulega fá íslensk tímarit falla í þann flokk og engin önnur á sviði lögfræði.
Að sögn Róberts R. Spanó prófessors og ritstjóra er þetta mikil viðurkenning fyrir tímaritið en síðustu ár hafi verið ... meira
|
|
Frelsi til að fjalla um nektarstaði eftir Pál Þórhallsson.
Mannréttindadómstóll Evrópu kvað 10. júlí 2012 upp dóma í tveimur íslenskum málum er varða tjáningarfrelsi. Dómarnir sæta þónokkrum tíðindum því þeir leiða í ljós ákveðna vankanta á lögum og lagaframkvæmd hér á landi á meira
Oddný Mjöll Arnardóttir
Alþjóðlegt samstarf mikilvægt til að viðhalda neistanum
Oddný Mjöll Arnardóttir sem verið hefur prófessor við lagadeild HR um árabil söðlaði um í sumar og gekk til liðs við lagadeild HÍ. Fréttabréf LÍ ræddi við hana af því tilefni.
Hver eru verkefni þín hjá HÍ og af hverju ákvaðstu að söðla um?
"Næstu þrjú árin hef ég rannsóknarstyrk til að helga mig rannsóknum á hinu svokallaða svigrúmi til mats í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu og Evrópudómstólsins. Ég mun því ekki kenna fyrr en eftir að þessu rannsóknarverkefni lýkur. Það var bara af ýmsum ástæðum kominn ... meira
|
Share with Your Friends