Efnahagsmál - 

09. júlí 2015

Er Seðlabankinn að draga úr virkni peningastefnunnar?

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Er Seðlabankinn að draga úr virkni peningastefnunnar?

Nú þegar ferðamannastraumurinn er sem mestur berast tíðindi af verulegum gjaldeyriskaupum Seðlabanka Íslands. Í raun hefur innflæði gjaldeyris verið með þeim hætti að Seðlabankinn hefur meira og minna legið á kauphliðinni frá því í september 2013, þ.e. keypt gjaldeyri í skiptum fyrir íslenskar krónur til að koma í veg fyrir verulega styrkingu krónunnar. Ef fram fer sem horfir þá er útlit fyrir að gjaldeyriskaup Seðlabankans á þessu ári einu og sér geti numið vel yfir 200 mö.kr.

Þetta kemur m.a. fram í nýrri umfjöllun efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins en þar segir enn fremur:

Inngrip Seðlabankans eru þó ekki án kostnaðar en Seðlabankinn greiðir gjaldeyriskaup sín með „peningaprentun“, m.ö.o. auka inngrip Seðlabankans peningamagn í umferð. Inngrip Seðlabankans eru um þessar mundir að mestu leyti óstýfð inngrip en það þýðir að Seðlabankinn grípur ekki til mótvægisaðgerða til að draga úr aukningu peningamagns. Þessu til viðbótar fylgir því kostnaður fyrir ríkið af miklum vaxtamun, einkum þegar stjórnvöld og í raun Seðlabankinn hafa lofað nánast óbreyttri krónu.

Seðlabankinn er því í nokkuð undarlegri stöðu. Annars vegar er hann byrjaður að hækka stýrivexti á ný og boðar frekari vaxtahækkanir á næstu mánuðum, en  um leið eykur hann peningamagn í umferð með inngripum á gjaldeyrismarkaði. Verðlagsáhrif þess að auka peningamagn í umferð eru þau sömu og ef Seðlabankinn lækkar vexti, því slíkt stuðlar að verðbólgu, lækkar virði krónunnar til lengri tíma litið og skapar þrýsting á markaðsvexti til lækkunar. Seðlabankinn er því m.ö.o. að draga úr áhrifum sinna eigin vaxtahækkana með inngripum á gjaldeyrismarkað.

Umfjöllun efnahagssviðs SA í heild sinni má finna hér að neðan:

Er Seðlabankinn að draga úr virkni peningastefnunnar"/frettatengt/frettir/eru-motvaegisadgerdir-sedlabankans-vanmetnar/">Eru mótvægisaðgerðir Seðlabankans vanmetnar?

Samtök atvinnulífsins