Menntamál - 

28. janúar 2016

Icelandair Hotels menntafyrirtæki ársins

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Icelandair Hotels menntafyrirtæki ársins

Icelandair Hotels er menntafyrirtæki ársins 2016. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra afhenti í morgun menntaverðlaun atvinnulífsins á menntadegi atvinnulífsins sem var haldinn í þriðja sinn á Hilton Reykjavík Nordica.

Icelandair Hotels er menntafyrirtæki ársins 2016. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra afhenti í morgun menntaverðlaun atvinnulífsins á menntadegi atvinnulífsins sem var haldinn í þriðja sinn á Hilton Reykjavík Nordica.

Hildur Elín Vignir, formaður dómnefndar og framkvæmdastjóri Iðunnar, gerði grein fyrir valinu en í rökstuðningu dómnefndar segir að hjá Icelandair Hotels sé unnið af mikilli fagmennsku og metnaði að fræðslumálum starfsmanna. Þar starfa að meðaltal um 700 manns af 25 þjóðernum og er markið fyrirtækisins að allir starfsmenn geti sótt sér fræðslu við hæfi.

„Fræðslumál eru forgangsmál hjá Icelandair hótelum og sú fjárfesting hefur skilað sér í auknum gæðum og starfsánægju. Verkefninu er hvergi nærri lokið og munum við halda áfram að þróa fræðslumálin til að standa undir síbreytilegum þörfum viðskiptavina og starfsfólks,“ segir Erla Ósk Ásgeirsdóttir, Icelandair Hotels, er forstöðumaður starfsmanna-og gæðasviðs.

undefined

Erla Ósk Ásgeirsdóttir, forstöðumaður starfsmanna-og gæðasviðs Icelandair Hotels, Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra og Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hotels.

Í dómnefndinni sátu auk Hildar Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins,  Steinn Logi Björnsson forstjóri Bláfugls og Þorsteinn Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Securitas var valinn menntasproti ársins en mikið og öflugt frumkvöðlastarf er unnið í fræðslumálum hjá fyrirtækinu. Securitas hefur tileinkað sér nýjustu tækni í miðlun fræðslu og náð mjög góðum árangri í svokallaðri speglaðri kennslu.

undefined

Hlíf Böðvarsdóttir, fræðslu- og gæðastjóri Securitas, Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra og Guðmundur Arason, forstjóri Securitas. 

„Við hjá Securitas erum afar hreykin og þakklát fyrir að vera valin menntasproti atvinnulífsins 2016. Verðlaunin eru okkur mikil hvatning og um leið viðurkenning á þeirri fræðslustefnu sem við höfum verið að móta. Securitas leggur metnað sinn í að starfsmenn séu vel þjálfaðir og meðvitaðir um nýjungar í sinni starfsgrein. Starfsþróunarmöguleikar eru miklir innan Securitas og starfsmenn eru hvattir til að auka hæfni sína og getu, bæði sem einstaklinga og liðsmenn,“ segir segir Einar Páll Guðlaugsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Securitas.

Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.

Samtök atvinnulífsins