Menntamál - 

13. maí 2016

Atvinnulífið fjárfestir í íslenskri tungu

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Atvinnulífið fjárfestir í íslenskri tungu

Stjórnvöld og fulltrúar atvinnulífsins hyggjast ráðast í sérstakt máltækniverkefni á næstunni svo tungumálið haldi velli hjá komandi kynslóðum. Í ágúst eða september á að liggja fyrir áætlun um hvernig tryggja eigi uppbyggingu íslenskrar máltækni til næstu ára. Þetta kemur fram í umfjöllun Vísis sem hefur að undanförnu fjallað um hættur sem margir telja að steðji að íslensku á tölvuöld.

Samtök atvinnulífsins, ásamt Samtökum iðnaðarins og ýmsum fjármálafyrirtækjum, hafa nú safnað fimm milljónum króna á móti öðrum fimm milljónum frá stjórnvöldum til þess að hægt sé að vinna aðgerðaáætlun um uppbyggingu nauðsynlegra innviða til næstu ára.

Hægt er að nálgast umfjöllun Vísis í heild hér, en meðal annars hefur verið rætt við sérfræðinga sem telja að framþróun í íslenskri máltækni þurfi að eiga sér stað á allra næstu árum.  Stuðningur við íslenska máltækni, til dæmis búnað sem hægt er að stýra með töluðu máli eða vélrænar þýðingar á borð við Google Translate-vélina, er af mörgum talinn skipta sköpum um framtíð tungumálsins.

Vísir ræðir m.a. við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, forstöðumann mennta- og nýsköpunarsviðs Samtaka atvinnulífsins. Hún segir að þetta snúist ekki bara um varðveislu menningararfs. „Þetta mun skipta máli upp á samkeppni, samkeppnisforskot okkar og okkar tæknifyrirtækja, upp á að geta sinnt þjónustu í gegnum talmál.“

Þorgerður viðurkennir að vera enginn sérfræðingur í íslenskri máltækni heldur hafi hún hlustað á þá sem best til þekkja.  „Þeir segja að innan skamms verði lyklaborð eiginlega orðin fátíð. Við munum, liggur við, tala við ísskápinn okkar og biðja um mjólk. Þá er betra að hann skilji að þú viljir mjólk en ekki kæfu.“

Framundan eru spennandi tímar en mikilvægt er að bregðast hratt við svo Íslendingar missi ekki af lestinni og samkeppnishæfni þjóðarinnar versni ekki. Kolbeinn Björnsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri máltækniverkefnisins en það er að sögn Þorgerðar einungis fyrsta skrefið.  Hún tekur undir með Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra, og fleiri ráðamönnum sem segja verkefnið gríðarlega mikilvægt.

„Við höfum ennþá tíma, við sitjum ekki eftir, og við getum náð öðrum löndum og gott betur.“

Samtök atvinnulífsins