Fréttir - 

30. júní 2017

Brexit: Íslenskir hagsmunir í forgrunni

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Brexit: Íslenskir hagsmunir í forgrunni

Fyrir rúmri viku hófust formlegar viðræður milli Bretlands og Evrópusambandsins um útgöngu Breta úr ESB (Brexit). Miklir hagsmunir eru í húfi fyrir íslenskt atvinnulíf enda er Bretland einn mikilvægasti útflutningsmarkaður Íslendinga með um 12% af heildarútflutningi. Samtök atvinnulífsins hafa því tekið saman greiningu og helstu atriði sem máli skipta fyrir íslensk fyrirtæki í þessu samhengi. Samantektina má nálgast hér að neðan.

Íslendingar fluttu út vörur til Bretlands árið 2015 fyrir 73 milljarða króna og til landsins fyrir 35 milljarða króna. 

Áætlanir gera ráð fyrir að Bretland muni ganga úr Evrópusambandinu innan tveggja ára. Vonast er til að fyrstu umferð samningaviðræðna um hvernig útgöngu Breta verður háttað ljúki á þessu ári og í kjölfarið hefjist viðræður um framtíðarsamband Bretlands og ESB.

Fyrir þingkosningarnar í Bretlandi 8. júní síðastliðinn benti allt til þess að um skýran aðskilnað yrði að ræða en líkur á mýkri nálgun eru taldar hafa aukist í kjölfar niðurstöðu kosninganna, sem þóttu áfall fyrir Íhaldsflokkinn og Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, en hún hafði boðað til kosninganna í þeim tilgangi að styrkja umboð sitt í samningaviðræðunum.

Óljóst er hvort að samningur Bretlands við ESB um framtíðarsamband ríkjanna muni jafnframt ná til Evrópska efnahagsvæðisins sem hefur veitt Íslandi aðgengi að innri markaði ESB og þar með Bretlandsmarkaði. Ísland gæti þurft að gera nýjan samning við Breta um samskipti ríkjanna til að tryggja gagnkvæma hagsmuni.

Íslendingar fluttu út vörur til Bretlands árið 2015 fyrir 73 milljarða króna og til landsins fyrir 35 milljarða króna. Þetta er um 12% af öllu útflutningsverðmæti Íslands og 5% af innflutningi til landsins. Þá var umfang þjónustuviðskipta líka mikið en útflutt þjónusta nam 66 milljörðum króna þetta ár sem var um 11% af heildar þjónustuútflutningi en innflutt þjónusta var um 66 milljarðar króna eða um 18% af heildarinnflutningi.

Sjá nánar:

Brexit: Íslenskir hagsmunir í forgrunni (PDF)

Brexit-póstlisti SA

Skráðu þig á póstlista SA hér að neðan ef þú vilt fá  nýjustu fréttir og greiningar SA um Brexit sendar í tölvupósti.

Umsóknarferli er lokið.

Samtök atvinnulífsins